Hópferð á hestamannaball í Danmörku!

Iceland Express og Hestafréttir bjóða upp á hópferð á Gangarts Cup í Danmörku laugardaginn 26.apríl, en það er hestamannamót sem lýkur með alvöru íslensku sveitaballi, - eins og við höfum áður minnst á hér á síðunni.

Ferðin kostar 64,900 og innifalið er flug fram og til baka, rúta frá Kaupmannahöfn á mótssvæðið (sem er rétt hjá Århus) og til baka, gisting í 2 nætur (1 í Köben og 1 í Århus) og síðast en ekki síst íslensk fararstjórn, en það er enginn annar en folinn Fjölnir Þorgeirsson sem mun stýra þessari ferð af sinni alkunnu snilld!

Nánari upplýsingar eru á vef Express ferða: http://www.expressferdir.is/viewtrip.php?idt=843   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband