Páskatúrinn, getraun og allt!


Jæja, þá er komið að því. Í dag leggjum við  af stað í okkar árlega páskatúr. Með í för verða Rás 2 og Coca Cola.
Viðkomustaðirnir eru þessir:

Miðvikudagur 19.mars - Hvíta húsið, Selfossi

Fimmtudagur 20.mars - Uppákoma á skíðasvæðinu í Oddskarði

Föstudagur 21.mars - Valhöll, Eskifirði

Laugardagur 22.mars - Félagsheimilið, Blönduósi.

Rás 2 býður hlustendum sínum á þessum stöðum að taka þátt í léttum leik í tengslum við túrinn. Ef þú svarar 2 laufléttum spurningum um okkur strákana þá áttu möguleika á að fá óvænta heimsókn um páskana!

Spurningarnar eru:

1. Hverjir skipa hljómsveitina Á móti sól

2. Hvar spilar hljómsveitin um páskana?

3. Hvað er uppáhaldslagið þitt með Á móti sól?

Svör á að senda á amotisol@amotisol.is Athugið að láta fullt nafn og heimilisfang fylgja. Helst gsm númer líka. Ef þú verður dregin/n út mætum við á tröppurnar hjá þér um páskana og tökum uppáhaldslagið þitt!

Gleðilega páska - Á móti sól


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hello

Flott síða hjá ykkur. Hlakka geðveikt til að fara á ball með ykkur þann 21.Mars:) Bestu kveðjur Árdís Hulda.  P.s Þið eruð frábær hljómsveit:)

Árdís Hulda (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 22:30

2 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Ég ætla rétt að vona að teppin séu ekki mygluð á þessum stöðum sem eftir eru!

:-)

Þórður Helgi Þórðarson, 20.3.2008 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband